Takk takk

Þá er skólinn að byrja á fullu of veturinn að fara að koma. Ég er í 22 einingum og 2 áfangar af þeim eru tungumála áfangar... Ísl og Dan. Oh man við skrifuðum niður upplestrar stíl, svona bara kennarinn að sjá hvar nemendurnir standa og viti menn í 15 setningum náði ég að gera 27 villur. Það kemur mér stórkoslega á óvart að ég get gert mig skiljanlegan á þessu tungumáli... En ég vinn þetta upp með því að vera ógeðslega góður í stærðfræði, eðlisfræði og svoleiðis fögum þar sem reglurnar eru bara svona kviss bang og bein lina, ekkert svona (og núna á að gera röddina svona nefmælta og væmnislega) "alltaf lítill stafur þegar (sk) er í orðinu NEMA þegar bla bla bla" Þú skilur.

Annars er búið að vera frekar ervit að vera til undanfarið eða frá því ca. um versló og mig langar að nota tækifærið og þakka öllum sem hafa veitt mér og mínum aðstoð. 

Svo er manneskja sem ég er ekki allveg að átta mig á. Þeir sem ekki þekja til þá er fysti stafurinn "I" og seinasti stafurin "nga" Ég sem rökhyggjumaður (trúi allavega að ég sé það) skil bara ekkert í svona manneskju sem lætur hrífast af tilfynningum eða vöntun þar af. Ég ætti að taka orð afa míns til greina og játa mig sigraðann strax fyir hinu kyninu.

well, i am off to sleep.


Muna að kvitta!?!

Ég er búinn að lesa nokkur blogg og ég hef tekið eftir rauðum þráð í flestum þeirra... Fyrr eða síðar biður blogg höfundurinn um að fólk kvitti á gestalistan. Jú jú það er gaman ef fólk kvittar en afhverju að gera að yfir höfuð? Klassíst "umbeðið" kvit: "Kvitterí kvitt", "bara að kvitta fyrir mig", o.s.f. Þetta fynst mér svo tilgangslaust. Mér fynst að fólk eigi að kvitta ef það hefur eithvað að segja (nema það sé eithvað flame) t.d. ef einhver segir skoðun sína á... umm ... hérna ... lalala.. já ef einhver segir skoðun sína á fólki sem er lengi að hugsa, þá væri sniðugt að segja sína reinslu í "kvittiniu" eions og. "já marr ég var í sjoppuni um daginn og gauinn fyrir framan mig ætlaði aldrei að áhveða sig..."

En hver ætli pæling dagsins sé?

Hann Eyþór bró varð 20 í dag (sennsagt þann 12.04.2008) Hann er orðinn frikin 20 ÁRA... þetta er ekki normal kvað tíminn líður hratt. En vá krakkin orðin 20 ára. þetta fékk mig til þess að líða eins og ég væri bara orðinn kall hlunkur, en allavega.. til hamingju með afmælið LITLI BRÓÐIR hehe. 

En svo er annað. Hann Hjalti (9 ára gamall)  er snillingur í skák. Hann allavega rústaði mér í skák nokkrum sinnum. Þetta liggur greinilega mög vel fyrir honum og Hjalti haltu áfram á þessari leið.

Kvernig væri að ljúka með einhverju trúarofstæki. Ég elska að lesa í Orðkviðonum og vill skilja eftir þetta orð. Orðs 22:1 endilega kíktu á það.

Nenni ekki að skrifa meira þannig að .. later 

 Kv. Snorri

 

P.s. hirru muna að skrifa í gestabókina. Whistling

 


Jólin !!

Jæja þá er kallinn búinn að fá vinnu. Það var sagt mér það í dag (þetta orðalag er bara fyrir þig mamma) að ég átt bara að mæta korteri eftir próf skella sér í gallan og byrja að vinna.

 Svo fékk ég niðurstöðurnar úr tvemur prófum og einu verkefni þar sem ég þurfti að halda fyrir lestur. Ég fékk ekki nema 8,5 út úr vélstjórnarprófi... meðaleinkunnin var reindar 4,3 og ég var næst hæðstur í prófinu.
Svo skellt ég enn einni 10 í sarpinn í vérfræðiprófi Smile, sá eini sem var með 10 Wink.
Svo í sama tíma var ég með fyrirlestur um efnafæðilega uppbyggingu díselolíu og kennarinn er svo vanur að skrifa á mig 10 að ég fékk bara 10 fyrir það líka Blush.

 

Ég er núna að horfa á sjónvarpið með öðru auganu og þátturinn Svalbarði er á. ÉG ER EKKI AÐ FATTA ÞETTA. Þessi þáttur er er annakvort með of gáfulegan eða of heimskulegan húmor. Mér fynst þetta heimskulegur húmor en ég neita að trúa að Skjár Einn borgi fyrir svona heimsku þannig að húmorinn hlítur að var of gáfaður fyrir mig og ég fatta hann einfaldlega ekki...

 

jæja ég ætla að fara hætta þessu

Skokkaðu í Guðs friði

Snorri Sig.

 

P.s.  Takið eftir því að ég myntist aldrei á jólinn í þessari færslu... HA HA !! FOOLED YOU !! Tounge

 Þetta er kanski ástæða fyrir því að ég fíla ekki Svalbarða?? Pinch

 

 


Pæling nr.1

Ég heirði dáldið töff pælingu um daginn.

 "Öll börn eru sérstök. en ef öll börn eru sérstök hvaðan kemur allt þetta venjulega fólk."

Hvað er það í uppeldinu, umhverfinu eða lífnu sjálfu sem gerið fólk að venjulegu fólki? Gæti verið að við veljum sjálf að verða "vejuleg" til að fitta inn? Ég veit það sjálfur með mig að ég hef oft viljað og sóst eftir því að vera "vejulegur" til að falla inn í hópinn.

Hér með er ég hættur að vera venjulegur. Hér með er ég bara ÉG. Það getur vel verið að ÉG sé "venjulegur" en ekki reiða þig á það þar sem eplið fellur ekki langt frá eikini og fólkið mitt er allt kol klikkað upp til hópa. Líka kanski eins gott því það er sjaldan leiðinlegt að hitta fólkið mitt.

 en talandi um epli og eikur... koma epli af eikartrjám? Mig minnir ekki, en það er pæling fyrir annan dag.

Gaktu með Guðs friði.

Snorri Sig


Taka 2

jæja þá er komið að því að reina blogga aftur. Ég ætla ekki að blogga regglulega. Það munu oft líða langur tími milli greina hjá mér en það er allt í lagi því þessar pælingar eru oft "tímalausar" þ.a.s. ekku um það sem er að gerast í fréttum þá og þegar.

 Vona að þú njótir þess að lesa um mínar sýrðu pælingar og endilega gerðu atugasemdir ef þú fynnur þig knúginn til þess.

 

P.s. ég tek ekki á móti atugasemdum um stafsetningu hjá mér. Ég veit að ég stafa oft vitlaust og að er nó að konan vælir í mér um það.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband